Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008
5.11.2008 | 14:11
Kaldhæðni örlaganna
Á sunnudag snerum við aftur úr okkar mögnuðu Indlandsferð. Ferðin gekk eins og í sögu, ekkert sem ekki mátti klikka fór úrskeiðis. Við fengum passana okkar með áritunum í tæka tíð, misstum ekki af neinum flugum eða lestum, og veiktumst svo til ekki neitt. Það sem flestir höfðu haft mestar áhyggjur af var að maginn á okkur myndi ekki þola ferðina. Algengt er víst að ferðamenn þoli ekki breytt mataræði á suðrænum slóðum, eða jafnvel fái einhverja sýkingu sem getur fylgt heiftugur niðurgangur. Við pössuðum okkur vandlega á mataræðinu og því sem við drukkum, og sluppum því blessunarlega við magakveisur. Við fögnuðum hverjum áfanga sem gekk áfallalaust, og á leiðinni heim vorum við farin að spyrja okkur hvort það ætlaði virkilega ekkert að klikka. Eftir sólarhrings flug heim var maður að vonum orðinn nokkuð sjúskaður. Tekið var á móti mér heima eins og ég hefði verið heimtur úr helju, veitingar trakteraðar fram og ég beðinn um að sýna myndir.
Svo komu slæmu fréttirnar. Hér var allt heimilisfólk með bullandi magapest! Ég lét mér fátt um finnast, og fór fljótlega að sofa. Mætti svo í skólann á Mánudeginum, próf og verkefni biðu. Á Þriðjudeginum var það orðið ljóst. Ég var kominn með skitu. Ó, grimmilegu örlög! Það er ekki til betri brandari, nýkominn heill af húfi úr tveggja vikna Indlandsferð, þarf að fara að snúa mér að skólanum, gera verkefni og mæta í tíma, og þá, þá fæ ég magapest.
O jæja, það þýðir ekki að fást um það. Fékk allavega einar góðar fréttir í dag, Barack Obama var kjörinn forseti Bandaríkjanna. Það vekur lítinn vonarneysta í hjarta mínu. Ég skrifa meira um ferðina seinna, þarf að fara á klósettið. Þorsteinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar