Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Akureyri

Lagðist ég í ferðamennsku og er búinn að vera norður í Eyjafirði tvær helgar í röð. Í vetrarfríinu fór ég ásamt fjölskyldu minni í afar lögulegan bústað frá 8 áratugnum í Fnjóskadal. Þar var fallegt landslag og gaman að vera, sérstaklega í milda veðrinu sem við fengum. Við fórum í gönguferðir og höfðum það svo rólegt á kvöldin. Eyddum einnig nokkrum tíma á Akureyri, lentum í afmælisboði hjá lítilli frænku okkar fyrir tilviljun. Borðuðum á Bautanum, fengum okkur Brynju-ís og löbbuðum aðeins í bænum. Rólegheit.

Helgina eftir var haldið í öllu fjörmeiri ferð með Nemendafélagi Flensborgarskólans, menningarferðina 2007. Vangaveltur höfðu verið uppi um hvort að þetta yrði í síðasta skipti sem farið yrði í slíka ferð, stjórnendur skólans ekki par hrifnir af því sem hún stendur fyrir. Á síðustu stundu leit líka út fyrir að ferðin yrði ekki farinn vegna þess að of margir höfðu hætt við sökum anna eða fjárhagsvandræða. En skipuleggjendum tókst á föstudagsmorgun að fá nógu marga í til að koma með, og var haldið af stað eftir hádegi. Eftir nokkurn akstur var á föstudagskvöldið farið beint úr rútunni á hrekkjavökuball á Sjallanum. Daginn eftir var svo vaknað alltof snemma og lýðurinn dreginn á flugsafnið. Svo fórum við í allsvakalega danskennslu, í jólahúsið, í sund og héngum á milli í herbergjum okkar á Hótel Norðurlandi. Við fengum pizzuveislu frá Bautanum með heilum 2 gerðum að pizzu ásamt kokteilsósu um kvöldið, og í kjölfarið af henni átti hópurinn svo góða kvöld- og næturstund við ýmis menningarstarfsemi.

Morguninn eftir (meira svona eftir hádegið) héldum við svo á stað í bæinn aftur í okkar langferðabíl. Eftir að kvikmyndasýning dagsins var búin, og við vorum komin í bæinn var okkur svo tilkynnt að við hefðum verið til algjörrar fyrirmyndar, og staðið okkur svo vel að ferðin verði farinn aftur á næsta ári. Húrra fyrir því.

En menntunin sjálf hefur örlítið gleymst í öllum látunum, það eru 4 eða 5 vikur eftir af skólanum og ætla ég að byrja að einbeita mér 100% að honum. Jæja, best að tékka hvað er í sjónvarpinu...

Höfundur

Þorsteinn Valdimarsson
Þorsteinn Valdimarsson
Hafnfirðingur, heimspekinemi, breytönd, kvikmyndanörd og nörd svona almennt séð
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

221 dagur til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband