Leita í fréttum mbl.is

Indlandsferð

Við erum að fara til Indlands í næsta mánuði. Langþráður draumur er að verða að veruleika. Þessu höfum við unnið að í 3 ár (að vísu lagt mismikið á okkur þessi ár) og nú er það komið á hreint. Ég, Lilja, Hildur og Árni munum halda af stað þann 18 október, sem er samkvæmt nýjustu útreikningum eftir 24 daga. Mér finnst óralangt síðan við mættum vikulega á fundi í Háteigskirkju í nafni hjálparstarfs kirkjunnar, borðuðum nammi og ræddum væntanlega ferð á milli þess að horfa á bíómyndir og spjalla um hluti sem tengdust efninu mismikið. Svo kom Árni inn í dæmið, við ákváðum að verða Changemaker. Allt púður fór í það meðan ferðin sat í bakbrennaranum. Fólk kvarnaðist úr ferðahópnum, og eftir stöndum við fjögur.

Við fljúgum til Chennai sem er í Tamil nadu fylki. Hún er fjórða stærsta þéttbýlissvæði á Indlandi, og er staðsett sunnarlega á austurströnd Indlands við Bengalflóa. Þetta svæði kom mjög illa út úr Tsunami árið 2004. Þar í nágrenninu, í Kancipuram héraði, starfa samtökin Social Action Movement, sem hjálparstarf kirkjunnar er í samstarfi við. Þau einbeita sér að því að frelsa þrælabörn úr ánauð, og koma í veg fyrir að fleiri verði til. Þau starfrækja skóla fyrir börnin og halda einnig forvarnarnámskeið fyrir foreldrana. Við munum heimsækja þessi samtök skoða aðbúnað þeirra, og jafnvel reyna að hjálpa eitthvað til. Við verðum þarna í 2 vikur. Ég er farinn að sjá hvað það er allt of stuttur tími. http://www.socialactionmovement.com/

Hluta af tímanum munum við svo eyða í nágrenni Vijayawada, sem er borg í Andrah Pradesh fylki, um 700 km. norðar en Chennai. Borgin er við bakka árinnar Khrisna. Þar nálægt hefur UCCI, eða Sameinaða indverska kirkjan aðstöðu sína. Hún rekur þarna barnaskóla og lítið sjúkrahús og hefur verið í samstarfi við hjálparstarf kirkjunnar. Sjá meira um þessa staði á síðu hjálparstarfsins: http://www.help.is/?verkefni/indland 

Við erum búin að undirbúa okkur talsvert. Tókum að okkur garðverk í vor, og ýmis hjáverk fyrir hjálparstarf kirkjunnar og fleiri. Erum búin að fara í sprautur og svona. Það er þó margt ógert. Eigum eftir að ráðfæra okkur frekar við aðra Indlandsfara, innheimta eitthvað af peningunum sem við unnum okkur inn, fá vegabréfsáritun, staðfesta áætlun okkar með þeim úti, og ýmislegt fleira. Svo eru litlu atriðin, byrja að pakka og gíra okkur upp saman. Við höfum samt verið að því ansi lengi.  Undanfarið hef ég verið að grúska á netinu og kynna mér aðeins þessa staði sem við heimsækjum. Ég mun örugglega skrifa meira um það áður en við förum út.

 indland


LOK

Kominn tími á að rjúfa þögn sumarsins. Það er haust, skólinn er byrjaður enn á ný, og ég hef mína (vonandi) síðustu önn í Flensborg. Það var eitt planað fyrir hana: afslöppun. Ég er að taka áfanga eins og afþreyingarbókmenntir, auglýsingasálfræði, matreiðslu og fornaldarsögu. Engan af þessum áföngum “þarf” ég til þess að útskrifast. Tók þá áhugans vegna. Að vísu er ég líka í Spænsku sem mun krefjast nokkurar einbeitingar. En þá er þetta líka komið. Hélt ég. 

Það kemur í ljós að til þess að útskrifast þarf að ljúka litlum áfanga er nefnist LOK 171. Þangað mæti ég einu sinni í viku ásamt hinum 60 sem stefna á útskrift jólin 2008. -Ekkert mál. Þessi ágæti tími er á Miðvikudögum kl. 15:20. Nú er það ekkert verri tími en hver annar fyrir flesta, en ég væri annars búinn í skólanum kl 11:30 þennan dag. Ég varð því strax örlítið pirraður út í þennan tíma. -En allt í góðu. Í fyrsta tíma voru markmið áfangans útskýrð; 
1. að skipuleggja og hrista saman hóp fyrir Dimmisjón,
2. að undirbúa nemendur fyrir lífið eftir framhaldsskólann.

-Ok. Síðan hlustuðu 55 manns á svona 5 manns tala um ekki neitt í klukkutíma þangað til það hringdi út. Nokkrir tímar hafa verið síðan þá, og þar var það sama var uppi á teningnum.

Er þetta virkilega nauðsynlegt? Það sem hingað til hefur komið fram í tímunum er að Dimmisjónin verði svaka stuð og fyllerí, og að við þurfum að byrja sem fyrst að safna sem mestum pening fyrir því. Síðan hafa verið fullt af kosningum, í hinar og þessar nefndir tengdar framkvæmdinni, um hvaða búninga við verðum í og hvernig fjáröflun er best að stunda. Gott og vel. Þeir sem hafa áhuga á svona skipulagningu og finnst þetta nógu merkilegt tilefni til að eyða tíma sínum og orku í, gjöriði svo vel. Hinir ættu að fá að leiða þetta hjá sér, sinna sínum skyldum, þrífa matsalinn nokkrum sinnum en ekkert meira en það. En þá er sett upp sérstök regla; ef þú missir af meira en 2 tímum af LOK, þá færð þú ekki að dimmitera, og ekki að útskrifast ef ég skildi þetta rétt. Ha? Hvað á þessi mætingafasismi að fyrirstilla? Tilgangslausasti tími annarinnar, sennilega tilgangslausasti áfangi sem ég hef nokkurntíman verið í, og útskriftin veltur á mætingu í hann? Það er margt skrýtið í kýrhausnum...

En svona er lífið bara. Maður verður að gera sér þetta að góðu. Mæta með kodda og sitja aftast. Kannski koma einhverjar áhugaverðar kynningar frá skólum inn á milli. Taka svo bara þátt í fjáröflunum og láta eins og maður hafi gaman að þessu. Dimmisjónin verður allavega svaka stuð.


Sumar

Jæja. Nú er sumarfríið byrjað, við erum farin að sjá glefsur af sumarveðri, ég held að það sé óhætt að segja að sumarið sé komið. Ég byrja samt ekki í sumarvinnunni minni á róló fyrr en í Júní, þannig að ég fæ góðan tíma til að slappa af og jafna mig...

Ehemm.

Gleðilegt ár. Kominn tími til þess að skrifa smá hér inná. Hér kemur stutt lýsing á atburðum síðustu tveggja mánaða. Prófin komu og ég náði öllu. Fékk 7 í líffræði 103 og íþróttum sem er nokkuð gott, en bara 5 í stærðfræði 503. Jólafríið kom og fór. Ég...

Akureyri

Lagðist ég í ferðamennsku og er búinn að vera norður í Eyjafirði tvær helgar í röð. Í vetrarfríinu fór ég ásamt fjölskyldu minni í afar lögulegan bústað frá 8 áratugnum í Fnjóskadal. Þar var fallegt landslag og gaman að vera, sérstaklega í milda veðrinu...

Jæja

Nú er önnin hálfnuð og við fengum miðannamatið í dag. Ég var með G í öllu nema íþróttum og Lífeðlisfræði. Í þeim var ég með Ó. Ástæðan fyrir lágu einkuninni í íþróttum er einföld, ég er með 50% mætingu. Þetta er í fyrsta tíma á miðvikudögum, og oft (t.d....

Myspace

Ég veit ekki alveg hvað gerðist, en ég var að fá mér myspace. Já, allt í einu núna eitthvað. Myspace er síða sem leifir notendum að skiptast á skilaboðum, spila tónlist, myndbönd, sýna myndir, blogga, stofna hópa, og margt fleira. Ég hef aldrei skilið...

Ferðasaga / Jarðfræðiverkefni

Ég var að gera fyrsta verkefnið mitt í Jarðfræði, sem var að "Skrifa um skemmtilegt ferðalag þar sem þú tókst eftir einhverjum jarðfræðilegum fyrirbrygðum" og ákvað að skrifa um vestfjarðaferðina mína. Ég ákvað síðan þegar ég var búinn að skella þessu...

Ber

Nú er sumrinu að ljúka og haustið gegnið í garð, eins og ég hef talað um í undanförnum færslum. Eitt sem fylgir alltaf haustinu hér á Íslandi og víðar, er uppskera berja. Þegar við vorum á Vestfjörðunum um síðustu mánaðarmót tókum við eftir því að þar...

Sumarlok - Skóli

Nú er sumarið búið og skólin farinn af stað. Þetta var fljótt að líða! Ýmislegt er búið að gerast á þessum mánuði sem er síðan ég skrifaði hingað síðast, samt lítið til að segja frá. Fór með fjölskyldunni í ferð til Vestfjarða, vorum að bæta úr því að...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Þorsteinn Valdimarsson
Þorsteinn Valdimarsson
Hafnfirðingur, heimspekinemi, breytönd, kvikmyndanörd og nörd svona almennt séð
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

219 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.